|
|
28.06.2007 18:08:04 / OskarH
»
23.04.2007 20:17:18 / OskarH
Jæja, ég beit á jaxlinn og ákvað að blogga
strax og ég loggaði hérna inn á blog.central.is
En fréttir segiði, voða lítið svona held ég barasta.
Fór til Reykjavíkur um páska, og það var bara
fínt, fyrir utan að lenda í að skipta um dekk á
sólarhringsfresti 
En svo fer þessi mánuður bara í, já að læra undir próf og klára
vinnuna sína þangað til ég fer út á sjó þann 12. maí.
Svo eru þessu blessuðu samræmdu próf sem eru að
koma, fyrir Guðnýju sætu til mikilla gleði Veit samt alveg að
hún mun negla þetta, þar sem hún er búin með öll nema 2 og það ætti
ekki að vera mikið stress í kringum þau. Þannig að ég segji bara
"good luck" til allra 10. bekkja á landinu ( þó ég viti nú alveg að
like, 0.02% af landinu les þetta blogg ).
En svo lítum smá á morgundaginn;
 vs  
Þriðjudaginn 24. apríl nk. munu gestgjafar Manchester United taka
á móti ellismellunum í AC Milan á Old Trafford.
Mikilvægir leikmenn:
#7 Cristiano Ronaldo. Þarf ég nokkuð að
taka það fram hversu mikilvægur hann er?!?!
#18 Paul Scholes. Eftir bann gegn Roma
mun Scholesey vonandi koma eins og óður hundur gegn Milan og leggja
upp slatta af mörkum fyrir okkur úti og heima.
#8 Wayne Rooney. Englendingurinn með
stóra skapið mætir vonandi þroskaður til leiks á þriðjudaginn og
með 2 mörk í síðustu tveimur leikjum í Meistaradeildinni og þurfa
því varnarmenn Milan að vara sig... verulega.
Þar sem Manchester er með ca. 5 meidda ætla ég ekki að koma með
uppstillingu á liðinu strax, gæti vel verið að ég hafi rangt fyrir
mér Segi samt að þessi leikur fari 1 - 0 fyrir Manchester,
Rooney með markið.
Leikurinn sýndur í beinni kl. 18:30 á sýn, be
there!
Málið að enda bloggið á laufléttum myndum frá sætustu ;*
 


;**
þangað til næst, kveðja Óskar H.
»
26.03.2007 11:14:28 / OskarH
Hæ drengz!
Vá, hvað þetta var góð sýning í gær....EN! Það klúðraðist atriði
hjá Magneu, með því að fara hlægja í 1 og hálfa mínútu og það
atriði var alveg glatað! Svona hint til allra; Ef þú ætlar að vera
leikari/leikkona, þá á að geta haldið í sér hlátrinum yfir
sýningum! Meira að segja leikstjórinn var í salnum og hann
var bálreiður yfir þessu, djöfull vorkenni ég stelpunum að vera
þarna í atriðinu 
Svo minni ég á, ein sýning eftir og er á þriðjudaginn
kl. 20:00!
En nóg um leikritið, helgin var mjög fín að auki.
Ég og Guðný fórum til Akureyrar um helgina, þar
sem Hanna Lísa var með lungnabólgu, þá þurfti Guðný að vera fyrir
hana í 2 sýningum. Eftir skólasýninguna á föstudaginn, skunduðum
við okkur heim, pikkuðum Kötu og Þóru upp og keyrðum til
Akureyrar.
Vorum svo bara að fylgjast með Pollamótinu hjá strákunum í 6.
flokki, og kíktum á búðaráp. Mamma splæsti meira að segja í 15.000
kr. jakka fyrir moi ( í afmælisgjöf btw ). Svo kíkti ég og
Guðný á alla skyndibitastaði á Akureyri ( Subway, Dominos, Nings ..
) og eftir helgina verður maður glaður að fá fisk orðið í
matinn.
Svo er þessi Sprotavika í skólanum núna, og ég
er víst að fara taka þátt í Gettu Betur með bóknámsbrautunum í dag.
Ætla svo líka að taka þátt í íþróttadeginum, komast e-ð í
fótbolta.
En spurning um að enda bloggið núna, er það ekki? 
- ÓskarH
»
11.03.2007 21:50:08 / OskarH
Í dag: 61
Alls: 16324
Jeminn eini, held að þetta kallist met á sunnudegi hvað margir
fara á bloggið manns =)
En fréttin bar í skauti sér mikillar gleði ( er svona að koma
mér í karakterinn sem ég leik í Krummaskuði );
Föstudagurinn:
Vinna hjá mér kl. 6, og var ekkert geðveikt að gera, plús ég
þurfti ekki að vinna á barvakt, þá skelltum við Guðný okkur á
Barkaball. Gummi Daði var dræver, og Einar, Ari og
Bjössi komu með. Skelltum okkur á Svarthvítu hetjuna áður en við
fórum á ball, og svo enduðum loksins á ballinu. Ágætisball alveg,
en alveg geðveikt hvað sumar íslenskar stelpur geta verið
blindfullar alveg =) lenti einu sinni á þessu kvöldi að vera fyrir
utan klósettin, kemur ein stelpan og ælir á gólfið. Svo 3-4 mín
eftir það kemur hún aftur og ælir á nákvæmlega sama stað, alveg
geðveikt En eftir ballið, biðum við ca. 30 mín eftir Bjössa
fyrir utan ballið, svo ætluðum við víst að skutla einni stelpuknátu
frá ballinu og heim til sín ( hún bjó btw í
Fellabæ ! ), og enduðum á Einarstöðum og þaðan
beint aftur í Fellabæ, og SVO lagt af stað til Norðfjarðar,
komum heim 05:30 og ég beint að sofa já!
Laugardagurinn:
Vaknaði um 12 leitið, og hangsaði bara e-ð þangað til
leiklistaæfing byrjaði 1. Tókum svo rennsli til 5.
Eftir það fór ég heim til Guðnýjar og gera okkur tilbúin fyrir
leiklistaferðina til Egs ( talandi um að fara oft
til Egilstaða þessa helgi =) ). Vorum komin ca. 19:50 til Egilstaða
og fórum á sýninguna um 8 leitið ( Fórum á Súper
Maríó btw ). Eftir sýninguna sá ég þónokkra galla, en
aðalega vegna mest frá áhorfi séð. Í fyrra lagi, var að það voru
grjóharðir og baklausir bekkir sem fólk þurfti að sitja á í 2
klukkutíma og 3 korter, og þá er ég víst byrjaður á hinu, en það er
að leikritið er OF langt. Allavegna er ekki hægt að taka
krakka frá 3 - 10 ára aldri til þess að einbeita sér að sýningunni
í 3 klukkutíma. En eftir að við vorum komin heim af sýningunni, þá
sofnaði maður bara í rólegheitum á fínum og velheppnuðum laugardegi

Sunnudagurinn:
Byrjum á því að ég vaknaði fyrst um morgun kl.
7:30, svo 8:30, svo
9:30 og loks 10:30. Örugglega
aldir síðan ég náði að vakna svona snemma á sunnudagsmorgni.
En anyway, fór á leiklistaæfingu kl. 2, og þá loksins vorum við
strákarnir komnir með e-rjar veiðistangir til að hafa í eitt
atriðið. En að sjálfsögðu var tekið rennsli, og gékk það alveg
ágætlega, nema ég hef aldrei heyrt jafn fyndið
áður og að segja "Mér finnst Bedúel svo stífur að syngja!".
Þetta þýðir bara tvennt; Hálfvitalegasta og
kaldhæðnislegasta sem ég hef heyrt á ævinni! En eftir
rennslin, þá fór ég bara heim í matarboð hjá múttu, og var þar
grillkjöt á borðstólnum. Eftir matinn, fór ég og Guðný að taka til
í herberginu, og eftir að ég sá allar þessar
heimsóknir í dag, þá dauðlangaði mér að blogga
BTW! Frumsýning á Krummastuð er á fimmtudaginn 15. mars nk!
En ég vona að þið áttuð góða helgi, I did Kveðjum þetta blogg
með nokkrum myndum ..

Sætust ;*

Kjéllinn náttúrulega bara gordjös!

Andri Þór var í krullum ..
Þangað til næst, kveðja ÓskarH.
»
02.03.2007 09:49:31 / OskarH
*Geisp*
Ákvað að skella þessu í kæruleysi og blogga.
Þann nk. 3. mars er stórleikur, Liverpool
-
Manchester United. Þar sem ég reyndar sé hann ekki á laugardaginn (
er að fara til Reyðarfjarðar að horfa á KFF leikinn ) þá ætla ég
samt að spá leiknum 
vs.

Liverpool
...........................Reina
..Finnan - Carragher - Agger -
Riise
Pennant - Gerrard - Alonso -
Gonzalez
.................Bellamy - Kuyt
Bekkur: Dudek, Hyypia, Mascherano, Sissoko,
Crouch.
Man Utd
.........................VDS
.........Neville - Rio - Vidic -
Evra
Ronaldo - Carrick - Scholes -
Giggs
...............Rooney -
Larsson
Bekkur:
Kuszczak, Brown, O'Shea, Park Ji-Sung,
Saha.
……………………………………………………………………………………..
Held að þessi
leikur fari 1-3 fyrir Man Utd, Rooney með tvennnu og
Ronaldo með eitt mark.
En hvenær er
barkinn eiginlega? Endilega leave a comment 
Birkir 'Lúri' Þorsteinsson biður að heilsa btw
..
-
ÓskarH
»
30.01.2007 13:13:56 / OskarH
»
12.01.2007 09:25:41 / OskarH
»
25.12.2006 22:52:44 / OskarH
....og hann komi í kvöld !
Jæja hvað segiði ? Jólaskap komið, ójá! Það kom reyndar ekki fyrr
en á aðfangadag, allavegna ekki á þorláksmessu þar
sem ég var að vinna 12 tima vakt í Egilsbúð,
ÓGEÐSLEGT!
En svakalega hef ég staðið mig vel i undirbúning með
fjölskylunni um jólin, ég, Fannar og Bjössi horfðum á Trölla stal
jólunum daginn fyrir þorláksmessu, og svo aftur með Hjálmari á
aðfangadag, kom mér í ágætt jólaskap, mæli samt ekki með því að
horfa alltaf á sömu jólamyndirnar um hátíðirnar 
Eina ástæðan sem ég gerði þetta blogg reyndar var að ég ætlaði
að telja upp gjafirnar;
Armband og Blend peysu frá Guðnýju ;*
Sjúkrakassa frá ömmu í Hfj
Útiföt allt árið úr útílíf frá mömmu, stjúpa, pabba, stjúpu,
ömmu&afa í Rvk
Boxer nærbuxur frá systu
Tölvudagbók frá Sesari ( kötturinn okkar btw )
Skyrtu frá tendó
Dvd mynd frá mági mínum
2x Dvd myndir og bjór frá Bjössa
Skyrtu frá Hjálmari bróðir
Dvd mynd frá frændsystkynunum mínum
Hálsmen frá ömmu&afa stjúpa
Svo var e-ð meira sem ég man bara ekki atm.
Svo gaf ég Guðnýju ipod, sem hún var bara
helvíti glöð með :] En jæja, erum við að tala um djamm um áramótin?
Endilega segja frá e-rjum böllum í comment! Óska ykkur
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs! ;**
Nýársheitið mitt verður að reyna koma í veg fyrir
að æla á fyllerí, þó það verði nú erfitt :x eða jafnvel bara að
hætta að drekka! 
Gleðileg jól, Kveðja Óskar Halldór.
»
04.12.2006 14:34:19 / OskarH
Shalom!
Þá er maður kominn heim úr borg óttans, og eyddi alveg
hellings pening, má alveg orða það þannig En
það er ekki sagt að ég skemmti mér ekki! Ég og Guðný komum
seinnipartinn á fimmtudaginn, og fórum bara um
kvöldið í Seltjarnanesið að hitta Steinunni. Eftir það leigðum við
mynd bara og horfðum á heima hjá pabba.
Á föstudaginn kíktum við í Menntaskólann í
Kópavogi ( MK semsagt ), og vorum alveg í klukkustund að bíða
eftir áfangastjóranum En allavegna eftir það fórum við svo í
Smáraliminn og vorum bara að versla. Djöfull getur
maður keypt mikið í Tiger *fimmuna* En ég keypti e-ð af gjöfum
þar og vorum alveg til hálf 6 þar. Fórum svo heim að passa litlu
systur, pöntuðum af Nings og höfðum það bara nice.

Svo á laugardaginn, lét ég og stjúpa Guðnýju passa
svo ég gat keypt jólagjöfina hennar Guðnýjar Eftir það fór ég og
Guðný uppeftir í Kringluna og að versla MEIRA!
Vorum þar alveg til svona hálf 5, fórum þá í
liminn aftur til að kíkja e-ð við í Topshop og
Retro. Svo á laugardagskvöldið, þá áttum við í erfileikum að velja
mynd handa okkur öllum ( þ.e. ég, Guðný, Steinunn, Heimir og Bjarki
) þannig stelpurnar ákváðu að hafa kósý kvöld handa þeim og við
strákarnir fórum á Borat og ef ég má segja,
DJÖFULSINS SNILLD ER ÞESSI MYND!!! Ég hló mig máttlausan Svo
eftir myndina fórum við strákarnir í Ground Zero
að hitta e-rja wow nörda og svo smá að spila, eftir það að sækja
Guðnýju og við fórum bara heim og horfðum á sjónvarpið or some


Á sunnudaginn var frekar lítið gert. Vöknuðum
12, fórum í Útilíf í Kringlunni til að máta
útivistarföt fyrir jólagjöf, eftir það fórum við á Kaffi
París í miðbænum til að fá okkur e-ð að borða fyrir
flugið, og svo bara eftir það fórum við í flug klukkan 4, sem
reyndar tafðist til kl. 16:50 og komum svo í Norðfjörð um 19:30. Og
þá var þessari mögnuðu helgi lokið 
En þangað til næst...
Kv. Óskar H.
»
22.11.2006 09:44:10 / OskarH
np; Aqualung - Strange and beutiful ( I´ll put a spell on you
)
Jæja lítið að frétta, ég er staddur eins og er heima og
bíða eftir tíma Vaknaði snemma til að skutla Guðnýju í vettfang
( held að það heiti það ) og hef bara ekkert getað sofnað eftir
það 
En það er leiklistanámskeið núna á hverjum degi í vikunni, sem
stendur alltaf frá kl. 19:00-21:00. Heeeeelvíti gaman að því En
á maður svo að gera ritgerð í dag? Spuuuurning 
Allavegna, ég sá á live2cruize spjallinu í morgun algjöra
snilld, þ.e.a.s. ef þú hatar nýja Justin Timberlake lagið sem er
alltaf á FM, endilega skoðaðu þetta! Ég hló upphátt 
- ÓskarH
»
20.11.2006 01:06:07 / OskarH
Jæja, Óskar nátthrafn kominn á svæðið og
bloggar.
En mikið að frétta? Neibb! Eina sem er að
frétta er að það er leiklistanámskeið sem ég er að fara í næstu
viku, með Guðjóni Sigvaldasyni, sama leikstjóra og leikstýrði
Cry Baby, sem mér hlakkar bara mjög til 
En þar sem ég ætla að hafa þetta e-ð stutt og laggott, þá bara
ætla ég að gera hérna lista eins og ég gerði fyrir rúmum 6
mánuðum...gjörið svo vel og endilega peistið þessi á bloggin ykkar
líka.
Núverandi föt : Bara boxer.
Núverandi skap: Fínt bara
Núverandi lykt: Boss rakspírinn
Núverandi farði: Enginn farði fyrir utan sýningar, ætla að
halda því þannig! ( þetta ætti að vera mottó-ið mitt )
Núverandi áform fyrir helgina/kveldið: Fyrir næstu helgi?
Tjah...vinna 
Núverandi hatur: Ekkert hatur svo sem...
Núverandi ósk: Að ég hefði pantað þennan helvítis þéttir í
bílinn fyrir löngu..
Núverandi hár: Dökkt og ógelað ( já ég gaf því sjéns um
helgina og setti ekki gel í það )
Núverandi dót í vösum: Engir vasar á boxer 
Núverandi pirringur: Að ég get ekki sofnað.
Núverandi aðhlátursefni: Fyndnasta línan úr Bad Boys II,
"That´s a nice fish, you know.....big fkn eyes.....but that´s a fkn
nice fish!"
Núverandi tónlist: Dice - Finley Quaye & William Orbit
feat. Beth Orton
Núverandi bók: Heyrðu, bara engin, nema e-r enskubók sem ég
þarf að læra fyrir ens212.
Núverandi uppáhaldsleikari: Eddie Murphy, Will Smith og
Nicholas Cage.
Núverandi uppáhaldsleikkona: Jessica Alba.
Núverandi skartgripir: Enga núna á mér atm, en oftast er ég
m.a. með; úr, armband og hring.
Núverandi löngun: Að jólafríið væri bara á morgun, sem er
ekki..
Núverandi áhyggja: Engin áhyggja..
Núverandi mynd: Indiana Jones....bara sem er á stöð 2 
Núverandi texti á heilanum: "Algjörlega
úrgelaður..."
Núverandi desktop pic: Í þessari fartölvu er bara e-r mynd
sem fylgir windowsinu.
Núverandi eftirsjá: To many and to few to list.
Núverandi skemmtun: Sesar kötturinn minn, greyið litla er
svo heimskt 
Núverandi vonbrigði: Engin...I think.
Núverandi blótyrði: "Djöfullinn hafi það!"
Núverandi staður: Herbergið mitt hjá mömmu húsi.
Núverandi hljómsveit: Orgy.
Núverandi söngvari: Fúsi í Out Loud maður! Nei annars veit
ég það ekki...
Núverandi söngkona: Þetta fer bara að vera pirrandi...
Núverandi land: Kanarí...langar svo þangað
Núverandi e-mail: oskarhg[att]simnet.is
Núverandi hlutir á veggnum: Heyrðu, fánar, hillur, LCD
sjónvarpið mitt, spegill....margt og mikið.
Núverandi uppáhaldþættir: One tree hill, Despraid Housewifes
( I know, I´m turning to a girl here )
Núverandi litur: Fjólublár myndi ég segja...
Núverandi hlutur til að hlakka til: Jólafríið!
Núverandi Msn manneskjur: Engar, er orðið svo seint 
Núverandi manneskja til að forðast: Skattstjórinn með
turbo vatnsbyssuna! Nei annars veit ég það ekki 
Núverandi vinir: æjj no comment, bara allt fólk sem ég tala
við ;*
Núverandi sársauki: Finn voða lítið til sko ;o
Núverandi texti sem lýsir þér: "Cut the crap, what´s in the
bag?" Neinei hvað á ég í andsk.....að vita það? 
Þetta er massívur skítur sko, en þangað til næst...
- ÓskarH
»
13.11.2006 13:49:09 / OskarH
Jæja, langt síðan ég bloggaði seinast, rúmur mánuður
En jæja, voða lítið sem hefur gerst...
Á döfinni:
- Er að
fara í jólapróf eftir 2 og hálfa
viku
- Fer til
Reykjavíkur þann 30. nóv með Guðnýju, kaupa
jólagjafir!
- Keilu-procjectið
fer bráðum að verða búið, ég og Nilli búnir að teppaleggja keiluna
og eina sem okkur vantar er 1. stk þéttir

- ...og
VETURINN er kominn,
!&"=&"$Ö"$#)&"=692jy2ö%"$"&"!!!
Talandi
um veturinn, um leið og ég var búinn að fá nagladekk, þá fór allur
snjórinn! Svo núna í fyrradag byrjaði að snjóa eins og það
gat, og núna orðið að slabbi og ógeði. 15 metrar á sekúndu og eini
staðurinn á austurlandi sem er hvassast.
En jæja, ætla að hætta að væla og veina, koma með nokkrar myndir í
lok blessaða bloggsins 




Jæja nóg af
rugli......endum þetta blogg samt með besta dýrinu!

Kv. ÓskarH
Þar til
næst..
»
15.10.2006 23:24:10 / OskarH
Já ég var svona að prufa nýtt útlit á þessa síðu, sagt að þetta
sé úber inni nú til dagsen 
EN HEYRRU HEYRRU!
Lítið að frétta, just like usual. Bara búinn að vinna sem mest, fór
nú smá á djamm þó.
Á föstudeginum var ég að vinna frá 18 - 23, og
bara þegar ég var kominn af vakt, heyrði ég að það var partí hjá
Eyda. Fór bara beint í djammgallann og drullaði mér með
uppáhaldsvin minn, hann Bjór, í föruneytið. Svo bara var sötrað,
farið svo í Egilsbúð og suckað í pool þar, svo
bara e-ð aftur í partí hjá Eyda, svo ákvað ég bara að fara heim að
sofa útaf framhaldsskólamóti daginn eftir, GREAT.
Jájá, á laugardaginn vaknaði ég kl. 9:30, klæddi
mig og gerði mig tilbúinn, sótti Guðnýju og stelpurnar og brunaði á
Reyðarfjörð. Mótið stóð alveg frá 11 til 5. Úrslitin urðu m.a:
1. ME - A
2. ME - B
3. VA - B
Vill taka það fram að ég var í VA - B Úrgeldilega töffaður
skilurðu...
Eftir að ég var kominn heim var bara vinna strax á eftir. Svo á
sunnudaginn...tjah, bara vinna. Hvílíkt líf...
En ég tók svona á netinu, svona bera saman við hvaða stjörnur ég
væri líkastur við...og já, megið bara dæma sjálf.

Er ég ekki svolítið Beckhamlegur? 
Well, sé ykkur næst..
- ÓskarH
»
11.10.2006 10:19:28 / OskarH

Jæja, er í Þýsku að gera e-ð hundleiðinlegt
hlustunarverkefni og mér getur ekki leiðst meira á
miðvikudagsmorgni.
En djöfull var ég að heyra snilldar brandara núna um daginn, verð
að skjót'onum út!
Sjúklingur: Sáli, sáli! Þú verður að hjálpa mér!
Konan mín fer alltaf á Pravda til að ná í aðra karlmenn!
Sálfræðingur: Rólegur...rólegur...
Sjúklingur: En....konan...þúst...
Sálfræðingur: Rólegur nú, allt í lagi. Dragðu nú
djúpt andann....og segðu mér nú hvar Pravda er.
En í dag er fólkið að fara út, með allri löggusveitinni. Man ekki
einu sinni hvert þau eru að fara, but what the hell, ég verð
einn heima!
Múhhahahahahahahahahahahahahahahahahhahahahahaha *draga inn andann*
hahahahahahahahahahahah 
Ég get svo séð Nilla fyrir mér í svona æfingu þarna úti, just like
löggurnar gera alltaf á hverju ári þegar þær fara út til útlanda. Í
svona þröngum SWAT búning með baunabyssu og að skjóta kýr..

Annars verður lítið að gera næstu helgi, allavegna er 18 ára ball
með Á skeit sól og Toby ( minnir það að hann kæmi
), líka verður fjarðaballið hjá öllum smátyppunum og smápíkz ( No
harm, bara gamni ) og þar verður sólin líka, þó það sé nú
bara rigning í firðinum fagra.
En ég verð svo sem að vinna alla helgina, allavegna
föstudags- og laugardagskvöldið, og svo allan
sunnudaginn. JIBBÝ!! En ég fæ frí laugardaginn sjálfan,
útaf framhaldsskólamótinu í fótbolta, sem verður á Reyðarfirði og
þá verður sko sparkað í tuðru 
En well, maður ætti kannski bara að chilla á þessu alla helgina,
fyrir utan vinnuna, hlakka bara til þegar mótið verður, það er
svona eina tilhlökkunin. Vantar núna líka eitt gott fyllerí í lífið
manns orðið, ég datt seinast í það um
verslunnarmannahelgina, vona að þetta
helvítis óvissuball fari nú að koma, ef ME-ingar geta drullast
til að gera í málunum.
- ÓskarH
»
20.09.2006 13:08:52 / OskarH
Shalom!
Jæja, nýtt útlit, svona fyrir páskafríðindin. Samt sem áður ekkert
að gerast, bara mjög mikið að vinna og vinna, var að vinna 24 tíma
alla seinustu helgi, eða bíddu....24+7....geyma
2.....29 tíma um helgina!
En djöfull er maður orðinn pirraður á svona "undirskriftalista"
eins og stopp.is; "19 hafa dáið á árinu,
söfnum undirskriftum og þær hjálpa mönnum að keyra hægar.".
Gæjinn sem gerði þessa auglýsingu hjá því fyrirtæki hefur misst
vinnuna daginn eftir, ef fólk keyrir útaf eða klessir á, þá er það
bara því að kenna, þýðir ekkert að væla undan þeirra mistökum. En
ég kíkti upp á Egilstaði í gær, og viti menn, fékk mér loksins
venjulegan símreikning í gemsann minn,
wohhhoooo.....no more inneign for me! Múhahahhahaha.....I got you
all, I GOT YOU ALL!!! 
En nóg af ruglinu, niva síðan alveg að fara koma upp, getið tjekkað
http://niva.va.is og getið
endilega líka látið mig fá linka á bloggin ykkar, er ekki enn búinn
að setja allt inn, en hún er samt ekki enn opnuð, það kemur á
tilkynningavefinn þegar það kemur. En svo þegar ég
fór á Egilstaði, keypti ég mér snilldar DVD mynd, "The long
weekend", sko ef þú hefur ekki séð þessa mynd,
mæli ég hiklaust með henni 

En jæja, annað mál í viðbót, menningaferðin.
Hverjir ætla? Ég ætla allavegna, get ekki beðið eftir að við
förum í m16, Bláa lónið, leikhús og margt fleira.
En jæja, félagsfræði 303 eftir 10 mín, spurning um að hafa þetta
blogg smá fetish og setja gamlar myndir af öllum hingað....hvernig
væri það? 



.jpg)
.jpg)
.jpg)
- ÓskarH
»
Síður: 1 2 3
|
|